Selfoss - Þorlákshöfn


08.03.2017

Framkvæmd

Framkvæmdir við Selfosslínu 3, 28 km langa 66 kV jarðstrengstengingu milli Selfoss og Þorlákshafnar, hófust í 2015 og var hún tekin í rekstur 7. júlí 2016. Jarðstrengurinn eykur afhendingaröryggi raforku í Hveragerði, Þorlákshöfn og á Selfossi og styrkir rekstraráreiðanleika vestari hluta 66 kV svæðiskerfisins á Suðurlandi og eykur flutningsgetu þess.

Strengleiðin liggur um sveitarfélögin Árborg og Ölfus, að mestu meðfram vegum sem fyrir eru á svæðinu, og var unnið að hönnun og útboði árið 2014, ásamt undirbúningi nauðsynlegra breytinga á búnaði tengivirkja í Þorlákshöfn og á Selfossi. Breyta þurfti aðalskipulagi sveitarfélaganna vegna umræddrar framkvæmdar og var unnið að skipulagsmálum í samvinnu við sveitarfélögin.

Samið var við fyrirtækið NKT Cables um framleiðslu jarðstrengsins og flutning til landsins, ásamt eftirliti með lagningu hans, tengingum og prófunum. Undirverktaki þeirra á Íslandi var fyrirtækið Orkuvirki.

Aftur í allar fréttir